lau 06. febrúar 2021 16:40
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Óvænt tap Dortmund - Auðvelt hjá Leipzig
Kerem Demirbay skoraði tvö fyrir Leverkusen
Kerem Demirbay skoraði tvö fyrir Leverkusen
Mynd: Getty Images
Youssoufa Moukoko skoraði fyrir Dortmund en það var ekki nóg til að ná í stig
Youssoufa Moukoko skoraði fyrir Dortmund en það var ekki nóg til að ná í stig
Mynd: Getty Images
Fimm leikir voru að klárast í þýska boltanum en Freiburg vann Borussia Dortmund 2-1 á meðan RB Leipzig var ekki í neinum vandræðu með botnlið Schalke.

Freiburg komst tveimur mörkum yfir gegn Dortmund. Woo-Yeong Jeung gerði fyra markið á 49. mínútu eftir sendingu frá Vincenzo Grifo áður en Jonathan Schmid kom Freiburg í þægilegri stöðu með öðru marki leiksins aðeins þremur mínútum síðar.

Það var svo hinn ungi og efnilegi Youssoufa Moukoko sem minnkaði muninn fyrir Dortmund þegar stundarfjórðungur var eftir af leiknum en þetta var annað mark hans á tímabilinu.

Dortmund tókst ekki að jafna leikinn og 2-1 sigur Freiburg staðreynd og Dortmund farið að fjarlægjast efstu liðin en liðið er í 6. sæti með aðeins 32 stig.

Bayer Leverkusen vann þá Stuttgart í markaleik, 5-2. Kerem Demirbay gerði tvö mörk fyrir Leverkusen en þeir Leon Baile, Florian Wirtz og Demiral Gray komust einnig á blað.

Leipzig vann þá botnlið Schalke 3-0. Franski varnarmaðurinn Nordi Mukiele skoraði undir lok fyrir hálfleiks og þá bættu þeir Marcel Sabitzer og Willi Orban við mörkum á síðustu tuttugu mínútunum.

Leipzig heldur í við Bayern München en nú eru aðeins sjö stig á milli liðanna.

Alfreð Finnbogason var ekki með Augsburg í dag sem tapaði 2-0 fyrir Wolfsburg.

Úrslit og markaskorarar:

Bayer 5 - 2 Stuttgart
1-0 Kerem Demirbay ('18 )
2-0 Kerem Demirbay ('31 )
2-1 Sasa Kalajdzic ('50 )
3-1 Leon Bailey ('56 )
4-1 Florian Wirtz ('68 )
4-2 Sasa Kalajdzic ('77 )
5-2 Demarai Gray ('84 )

Freiburg 2 - 1 Borussia D.
1-0 Woo-Yeong Jeong ('49 )
2-0 Jonathan Schmid ('52 )
2-1 Youssoufa Moukoko ('76 )

Schalke 04 0 - 3 RB Leipzig
0-1 Nordi Mukiele ('45 )
0-2 Marcel Sabitzer ('73 )
0-3 Willi Orban ('87 )

Mainz 1 - 0 Union Berlin
1-0 Moussa Niakhate ('21, víti )
Rautt spjald: Nico Schlotterbeck, Union Berlin ('55)

Augsburg 0 - 2 Wolfsburg
0-1 Wout Weghorst ('38 )
0-2 Ridle Baku ('59 )
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leverkusen 26 22 4 0 66 18 +48 70
2 Bayern 26 19 3 4 78 31 +47 60
3 Stuttgart 26 18 2 6 60 31 +29 56
4 Dortmund 26 14 8 4 53 32 +21 50
5 RB Leipzig 26 15 4 7 60 32 +28 49
6 Eintracht Frankfurt 26 10 10 6 42 35 +7 40
7 Augsburg 26 9 8 9 43 42 +1 35
8 Hoffenheim 26 9 6 11 44 50 -6 33
9 Freiburg 26 9 6 11 36 48 -12 33
10 Werder 26 8 6 12 35 41 -6 30
11 Heidenheim 26 7 8 11 35 44 -9 29
12 Gladbach 26 6 10 10 46 50 -4 28
13 Union Berlin 26 8 4 14 25 42 -17 28
14 Wolfsburg 26 6 7 13 31 44 -13 25
15 Bochum 26 5 10 11 30 54 -24 25
16 Mainz 26 3 10 13 22 46 -24 19
17 Köln 26 3 9 14 20 47 -27 18
18 Darmstadt 26 2 7 17 26 65 -39 13
Athugasemdir
banner
banner
banner