Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 06. febrúar 2023 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Landsliðshópur U19 sem fer á æfingamót í Portúgal
Mynd: KSÍ
Mynd: Kristianstad

Margrét Magnúsdóttir er búin að velja leikmannahóp U19 ára kvennalandsliðsins sem tekur þátt í æfingamóti í Portúgal í febrúar.


Ísland spilar þar við Portúgal, Pólland og Wales og er þetta samskonar mót og U17 kvennalandsliðið er á þessa stundina.

Æfingamótið hefst 15. febrúar þegar Ísland mætir Póllandi og svo er keppt á þriggja daga fresti. Annar leikurinn er við Portúgal og sá þriðji við Wales.

Flestar í landsliðshópnum koma úr röðum Breiðabliks, eða fjórar talsins, en svo eru þrjár frá Stjörnunni og þrjár frá Val. Tvær koma úr herbúðum FH og svo er Emelía Óskarsdóttir leikmaður Kristianstads einnig í hópnum. Emelía væri gjaldgeng í U17 landsliðið en er að spila uppfyrir sig.

Landsliðshópurinn:
Birna Kristín Björnsdóttir - Breiðablik
Írena Héðinsdóttir Gonzalez - Breiðablik
Mikaela Nótt Pétursdóttir - Breiðablik
Vigdís Lilja Kristjánsdóttir - Breiðablik
Berglind Þrastardóttir - FH
Elísa Lana Sigurjónsdóttir - FH
Tinna Brá Magnúsdóttir - Fylkir
Henríetta Ágústsdóttir - HK
Þóra Björg Stefánsdóttir - ÍBV
Ísfold Marý Sigtryggsdóttir - KA
Emelía Óskarsdóttir - Kristianstads DFF
Eyrún Embla Hjartardóttir - Stjarnan
Snædís María Jörundsdóttir - Stjarnan
Sædís Rún Heiðarsdóttir - Stjarnan
Fanney Inga Birkisdóttir - Valur
Hildur Björk Búadóttir - Valur
Sigríður Theód. Guðmundsdóttir - Valur
Jakobína Hjörvarsdóttir - Þór
Freyja Karín Þorvarðardóttir - Þróttur R.
Katla Tryggvadóttir - Þróttur R.


Athugasemdir
banner
banner