Fiorentina hefur lagt treyjunúmer Davide Astori niður, til virðingar um þennan ítalska varnarmann sem lést um helgina 31 árs að aldri.
Astori lék með 13 á bakinu en Cagliari hefur einnig lagt númerið niður. Hann lék með Cagliari í átta ár frá 2008.
Astori gekk í raðir Fiorentina frá Cagliari 2016 og var fyrirliði Fiorentina.
Astori lék með 13 á bakinu en Cagliari hefur einnig lagt númerið niður. Hann lék með Cagliari í átta ár frá 2008.
Astori gekk í raðir Fiorentina frá Cagliari 2016 og var fyrirliði Fiorentina.
Hann fannst látinn á hótelherbergi sínu á sunnudagsmorgun, fyrir leik gegn Udinese. Liðsfélagar hans brutu upp hurðina að herberginu þegar Astori mætti ekki í morgunmat á leikdegi.
Leik Fiorentina og Udinese var frestað ásamt öllum leikjum í ítölsku A-deildinni sem fram áttu að fara þennan dag.
Astori átti eiginkonu og tveggja ára dóttur. Verið er að rannsaka ástæðu andláts hans en mínútu þögn verður til minningar um hann fyrir Evrópuleiki vikunnar.
Athugasemdir