Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 06. mars 2020 22:35
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Liðsfélagi Jóns Daða gerði þrennu á þrettán mínútum
Matt Smith fagnar þrennu sinni gegn Forest
Matt Smith fagnar þrennu sinni gegn Forest
Mynd: Getty Images
Nott. Forest 0 - 3 Millwall
0-1 Matt Smith ('20 )
0-2 Matt Smith ('26 )
0-3 Matt Smith ('33 )

Enska B-deildarfélagið Millwall vann Nottingham Forest 3-0 er liðin mættust í kvöld en Matt Smith, framherji Millwall, gerði þrennu á þrettán mínútum.

Smith skoraði fyrsta markið á 20. mínútu og tvöfaldaði forystuna sex mínútum síðar.

Hann fullkomnaði þrennuna á 33. mínútu áður en flautað var til loka fyrri hálfleiks.

Jón Daði Böðvarsson kom inná sem varamaður á 86. mínútu leiksins en hann hefur spilað 30 leiki á leiktíðinni, skorað 4 mörk og 4 stoðsendingar.

Millwall er í 7. sæti deildarinnar með 54 stig og er baráttan um umspilssæti vel á lífi.
Athugasemdir
banner
banner
banner