Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 06. mars 2020 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía um helgina - Juventus mætir Inter fyrir luktum dyrum
Juventus spilar við Inter
Juventus spilar við Inter
Mynd: Getty Images
Síðustu sex leikirnir í 26. umferð Seríu A á Ítalíu fara fram um helgina en fjórir leikir voru spilaðir síðustu helgi.

Kórónaveiran hefur verið skæð síðan hún kom til Ítalíu en dauðföll eru komin yfir hundrað og þá hafa yfir þrjú þúsund einstaklingar verið smitaðir.

Sex leikjum var frestað síðustu helgi til að huga að öryggi leikmanna og stuðningsmanna en það verður spilað fyrir luktum dyrum næstu vikur til að koma í veg fyrir smit.

Juventus mætir Inter á sunnudag en þar eigast við erkifjendur síðustu ára.

Leikir helgarinnar:

Laugardagur:
11:30 Parma - Spal
14:00 Milan - Genoa
14:00 Sampdoria - Verona
17:00 Udinese - Fiorentina
19:45 Juventus - Inter

Sunnudagur:
17:30 Sassuolo - Brescia
Athugasemdir
banner
banner