Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 06. mars 2020 09:30
Magnús Már Einarsson
Maguire tæpur fyrir Manchester slaginn
Mynd: Getty Images
Harry Maguire, varnarmaður Manchester United, er tæpur fyrir grannaslaginn gegn Manchester City á sunnudaginn.

Maguire er að glíma við meiðsli á ökkla og hann var fjarri góðu gamni gegn Derby í enska bikarnum í gærkvöldi.

Maguire, sem hélt upp á 27 ára afmæli sitt í gær, er nú í kapphlaupi við tímann til að ná grannaslagnum.

Hann missti af síðasta leik Manchester liðanna á Old Trafford en City hafði þá betur 3-1 í enska deildabikarnum í janúar.

Athugasemdir
banner
banner
banner