Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 06. mars 2020 13:30
Magnús Már Einarsson
Mourinho: Dier verður að spila á morgun
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Tottenham, segir að Eric Dier sé í góðu lagi og muni spila gegn Burnley á morgun. Dier komst í fréttirnar eftir bikarleikinn gegn Norwich á miðvikudaginn en þá rauk hann upp í stúku til að rífast við áhorfanda.

Áhorfandinn ku hafa verið með leiðindi við bróður Dier og það fór illa í leikmanninn.

Enska knattspyrnusambandið ætlar að skoða málið en Mourinho segir að Dier spili á morgun.

„Það er engin ástæða til að hann sé ekki með rétt hugarfar. Hann hefur spiilað síðustu tvo mjög vel, í þriggja manna vörn gegn Wolves og í fjögurra manna vörn gegn Norwich," sagði Mourinho.

„Það sem gerðist er augljóst, það gerðist eiginlega ekki neitt að mínu mati. Áður en ég kom hingað var hann ekki að spila mikið og hann verður að spila á morgun."
Athugasemdir
banner
banner