Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   þri 06. apríl 2021 07:30
Victor Pálsson
Zidane um Salah: Ekki minn leikmaður
Mynd: Getty Images
Zinedine Zidane, stjóri Real Madrid, vildi lítið tjá sig um sóknarmanninn Mohamed Salah á blaðamannafundi í gær.

Salah er orðaður við brottför frá Liverpool sem spilar við Real í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar á Spáni í kvöld.

Real er oft sagt áhugasamt um egypska landsliðsmanninn en Zidane gaf ekki mikið út í samtali við blaðamenn.

„Hann er ekki minn leikmaður," sagði Zidane á blaðamannafundi fyrir leikinn í kvöld.

„Ég er með 25 leikmenn hérna og sem stendur nýt ég persónulega lífsins sem stjóri Real Madrid."
Athugasemdir
banner
banner
banner