banner
   mán 06. júní 2022 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Götze í viðræðum við Benfica
Mynd: EPA

Sóknarsinnaði miðjumaðurinn Mario Götze er fáanlegur á útsöluverði í sumar og er kominn í viðræður við Benfica í Portúgal.


Þessi fyrrum landsliðsmaður Þýskalands, með 63 leiki að baki, hefur gert flotta hluti með PSV Eindhoven í Hollandi undanfarin tvö ár en þar áður lék hann fyrir Borussia Dortmund og FC Bayern.

Roger Schmidt þjálfaði Götze hjá PSV en er núna búinn að taka við Benfica í Portúgal og vill taka Götze með sér.

Götze kostar ekki nema fjórar milljónir evra og er það því leikmaðurinn sjálfur sem ræður framtíð sinni. AC Milan hefur einnig verið orðað við Götze í sumar.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner