Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 06. júní 2022 10:20
Ívan Guðjón Baldursson
Mane: Myndi frekar spila fyrir Marseille heldur en Bayern
Mynd: Getty Images

Framtíð Sadio Mane er mikið í umræðunni þar sem hann á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Liverpool og er talinn vilja leita á önnur mið.


FC Bayern hefur verið nefnt til sögunnar sem mögulegur áfangastaður fyrir Mane og greina enskir fjölmiðlar frá því að Liverpool hafi hafnað 25 milljón punda tilboði frá Þýskalandsmeisturunum.

Mane sjálfur virðist ekki vera stressaður yfir framhaldinu og hafa ummæli hans undanfarna daga vakið mikla athygli og valdið einhverjum usla. 

„Þið vitið að ég er ekki stuðningsmaður þessara liða," svaraði Mane þegar hann var spurður hvort hann vildi frekar spila fyrir Bayern, Real Madrid eða Barcelona.

„Mitt uppáhaldsfélag er Marseille. Ég myndi frekar fara þangað."

Sjá einnig:
Sadio Mane staðfestir að hann sé á förum
Mane: Sagði þetta í léttu gríni


Athugasemdir
banner
banner