Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 06. júní 2022 08:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mourinho að ná í Matic í þriðja sinn
Matic er á leið til Ítalíu.
Matic er á leið til Ítalíu.
Mynd: EPA
Það er útlit fyrir það að miðjumaðurinn Nemanja Matic sé búinn að finna sér nýtt félag eftir að hafa yfirgefið herbúðir Manchester United fyrir stuttu.

Samningur hans við Man Utd er að renna út og var tekin ákvörðun um að framlengja hann ekki.

Það eru háværar sögusagnir að Matic sé að ganga í raðir ítalska úrvalsdeildarfélagsins Roma á frjálsri sölu.

Gianluca Di Marzio og Fabrizio Romano, sem eru báðir tveir mjög áreiðanlegir fjölmiðlamenn, segja frá þessu.

Verður það þá í þriðja sinn sem Jose Mourinho, núverandi knattspyrnustjóri Roma, nær í Matic. Hann fékk hann líka til Chelsea og til Man Utd.
Athugasemdir
banner
banner
banner