Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 06. júní 2022 13:40
Ívan Guðjón Baldursson
Tomori ánægður hjá Milan - Að skrifa undir nýjan samning
Mynd: EPA

Enski landsliðsmaðurinn Fikayo Tomori er að gera nýjan samning við Ítalíumeistara AC Milan.


Tomori er lykilmaður í hjarta varnarinnar við hlið franska miðvarðarins Pierre Kalulu og með hinn gríðarlega öfluga Mike Maignan á milli stanganna fyrir aftan sig.

Milan keypti Tomori í fyrra fyrir um 30 milljónir punda og reyndist hann einn af bestu varnarmönnum deildartímabilsins í Serie A.

Tomori á þrjú ár eftir af samningnum við Milan en félagið vill ólmt endursemja við leikmanninn og binda hann til 2027.

Tomori er afar hamingjusamur á Ítalíu og er búist við því að samningsviðræðunum ljúki fljótt.


Athugasemdir
banner
banner
banner