Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 06. júlí 2018 16:53
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Brasilíu og Belgíu: Marcelo og Fellaini byrja
Fellaini byrjar hjá Belgíu.
Fellaini byrjar hjá Belgíu.
Mynd: Getty Images
Það er stórleikur að hefjast klukkan 18:00 á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi. Annar leikur 8-liða úrslitanna hefst þá en þar mætast Brasilía og Belgía.

Sjá einnig:
Benni Vals spáir í leik Brasilíu og Belgíu

Bæði lið gera tvær breytingar á byrjunarliðum sínum. Brasilía vann Mexíkó 2-0 í 16-liða úrslitunum og Belgía lagði Japan 3-2 í frábærum fótboltaleik.

Tite, landsliðsþjálfari Brasilíu, staðfesti byrjunarlið sitt við blaðamenn fyrir nokkrum dögum. Marcelo kemur aftur inn í vinstri bakvörðinn og Fernandinho byrjar í stað Casemiro.

Hjá Belgía byrjar Nacer Chadli, hetjan gegn Japan, í stað Carrasco og Fellaini kemur inn fyrir Dries Mertens.

Byrjunarlið Brasilíu: Alisson, Fagner, Thiago Silva, Miranda, Marcelo, Fernandinho, Paulinho, Coutinho, Willian, Neymar, Jesus.

Byrjunarlið Belgíu: Courtois, Meunier, Alderweireld, Kompany, Vertonghen, Chadli, Witsel, Fellaini, De Bruyne, Hazard, Lukaku.

Frakkland vann Úrúgvæ áðan og varð fyrsta liðið til að komast í undanúrslitin. Hvort verður það Belgía eða Brasilía sem vinnur sér inn sæti í undanúrslitunum.
Athugasemdir
banner
banner