Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 06. júlí 2018 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Delph náði ekki síðasta leik en er mættur aftur núna
Delph í leiknum gegn Belgíu á dögunum.
Delph í leiknum gegn Belgíu á dögunum.
Mynd: Getty Images
Fabian Delph er kominn aftur til móts við enska landsliðið á HM í Rússlandi.

Delph fór heim til Englands til þess að verða viðstaddur fæðingu þriðja barns síns.

Delph og eiginkona hans Natalie eignuðust sína þriðju dóttur. Delph greindi frá þessu á Instagram.

Missti af leiknum gegn Kólumbíu
Delph missti af leik Englands og Kólumbíu á þriðjudag. England vann leikinn í vítaspyrnukeppni og mun mæta Svíþjóð í 8-liða úrslitunum á morgun, laugardag.

Delph byrjaði í 1-0 tapinu gegn Belgíu í lokaleik riðlakeppninnar en afar, afar ólíklegt er að hann byrji gegn Svíþjóð.

Delph er 28 ára gamall og var hluti af Manchester City liði sem varð Englandsmeistari með yfirburðum í vetur. Hann spilaði nokkuð stóra rullu sem vinstri bakvörður en hann er að upplagi miðjumaður.


Athugasemdir
banner
banner