Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 06. júlí 2018 21:30
Gunnar Logi Gylfason
Giroud hefur ekki enn átt skot á markið
Mynd: Getty Images
Oliver Giroud, framherji franska landsliðsins, hefur byrjað inn á í fjórum síðustu leikjum Frakklands á Heimsmeistaramótinu.

Giroud hefur átt sjö skot á mótinu en enn hefur hann ekki átt skot á markið.

„Það er rétt að Oliver hefur ekki enn skorað, ég endurtek - ekki enn."

„Hann er kannski ekki með tæknilega getu eins og margir aðrir leikmenn en liðið þarfnast hans í hverjum leik því jafnvel þó hann skori ekki gerir hann marga hluti fyrir okkur," sagði Didier Deschamps.

Frakkland vann Úrúgvæ 2-0 í 8-liða úrslitum í dag og mætir Belgíu í undanúrslitum.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner