Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 06. júlí 2018 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
HM í dag - Tveir frábærir leikir á föstudegi
Lukaku og félagar spila við Brasilíu.
Lukaku og félagar spila við Brasilíu.
Mynd: Getty Images
HM heldur áfram í dag. Átta liða úrslitin eru næst á dagskrá og eru fyrri tveir leikirnir í dag.

Úrúgvæ hefur unnið alla leiki sína á mótinu hingað til. Þeir eru í banastuði en mætu sterku liði Frakklands. Þetta verður klárlega athyglisverður leikur.

Síðasti leikur dagsins verður ekki minna athyglisverður. Brasilía og Belgía eigast þar við. Þessi lið eru með stórstjörnur í nánast hverri stöðu og baráttan veður hörð um sæti í undanúrslitunum. Neymar gegn Hazard, De Bruyne gegn Coutinho og Lukaku gegn Gabriel Jesus. Þetta verður alvöru!

Erfitt er að giska á hvaða tvö lið munu vinna sér inn sæti í undanúrslitum þennan föstudaginn.

Á morgun eru seinni tveir leikirnir í 8-liða úrslitunum.

Leikir dagsins:
14:00 Úrúgvæ - Frakkland (Nizhniy Novgorod)
18:00 Brasilía - Belgía (Kazan)
Athugasemdir
banner
banner
banner