Zlatan Ibrahimovic, stærsta stjarna sænsku knattspyrnusögunnar, og David Beckham, einn frægasti knattspyrnumaður fyrr og síðar, eru með frábært veðmál í gangi fyrir leik þjóða þeirra, Svíþjóðar og Englands.
Zlatan setti inn mynd af sér í leik að kljást við Beckham á árum áður og segir að ef England vinni leikinn á morgun mun hann bjóða Beckham út að borða hvar sem hann vill í heiminum.
Ef Svíþjóð vinnur hins vegar muni Beckham þurfa að kaupa hvað sem Zlatan vill úr Ikea.
Beckham svaraði þessu og breytti veðmálinu svolítið en mynd af þessu er hægt að sjá hér að neðan.
Svarið komið frá Beckham. Geggjað veðmál! pic.twitter.com/hWoUQHhY36
— Guðmundur Marinó (@GummiMarino) July 6, 2018
Athugasemdir