Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 06. júlí 2018 18:00
Magnús Már Einarsson
Zlatan: Svíþjóð getur orðið heimsmeistari
Zlatan Ibrahimovic.
Zlatan Ibrahimovic.
Mynd: Getty Images
Zlatan Ibrahimovic, fyrrum fyrirliði sænska landsliðsins, telur að Svíþjóð geti farið alla leið og unnið HM í Rússlandi. Svíar mæta Englendingum í 8-liða úrslitunum á morgun.

„Núna snýst þetta ekki bara um það hversu góður þú ert. Núna eru miklar tilfinningar í spilinu því að þetta eru 8-liða úrslitin," sagði Zlatan.

„Liðið sem getur höndlað tilfinningarnar best mun hafa vinninginn."

„Já ég held að Svíþjóð geti orðið heimsmeistari. Alveg eins og ég sagði áður en HM hófst."

„Þeir unnu sterkt lið Mexíkó og þeir unnu Sviss líka. Þeim hefur gengið vel, eitthvað sem enginn bjóst við."

Athugasemdir
banner
banner