Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 06. júlí 2019 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Balotelli borgaði manni á vespu fyrir að keyra út í sjóinn
Mynd: Getty Images
Mario Balotelli er samningslaus eftir þrjú ár í franska boltanum, þar sem hann skoraði 41 mark í 73 deildarleikjum fyrir Nice og Marseille.

Hann er þekktur fyrir ýmsa hluti sem tengjast ekki knattspyrnuhæfileikum hans og er hann með næstum 9 milljón fylgjendur á Instagram.

Það er þar sem hann birti myndband af manni í nærbuxum sem keyrir út í sjóinn á vespunni sinni.

Maðurinn er bareigandi og lofaði Balotelli honum 2000 evrum fyrir að keyra út í sjóinn.

„Vespan var hvort sem er bara 600 evru virði," sagði maðurinn við fréttamenn eftir atvikið.

Vespuna þurfti að veiða aftur úr sjónum til að hún myndi ekki skemma báta og viðstöddum til mikillar furðu virkaði hún enn.


Athugasemdir
banner
banner