Hinn 33 ára gamli James Milner hefur verið frábær undanfarinn áratug og var mikilvægur hlekkur í liði Manchester City áður en hann skipti yfir til Liverpool.
Það voru ekki margir sem spáðu því að hann væri enn í fullu fjöri hjá einu af bestu liðum heims á þessum aldri en hann er enn í fantaformi og sýnir engin merki um að hægja á sér.
Í byrjun hvers tímabils fara allir leikmenn Liverpool í einskonar 'píptest' til að athuga hver er með besta úthaldið. Leikmenn hlaupa þar til þeir geta ekki meir og gefast upp.
Í ár voru það James Milner og Joe Gomez sem stóðu uppi í lokin en hinn efnilegi Gomez gafst upp á undan reynsluboltanum. Myndband af lokahringnum má sjá hér fyrir neðan.
Final lap of the gruelling lactate test 👟👟👟@JamesMilner 🆚 @J_Gomez97
— Liverpool FC (@LFC) July 6, 2019
Athugasemdir