Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 06. júlí 2019 13:35
Ívan Guðjón Baldursson
Jökull hélt hreinu í fyrsta leik með aðalliði Reading
Mynd: Reading
Jökull Andrésson varði mark Reading í æfingaleik gegn Southend United í dag. Jökull fékk að spila fyrri hálfleikinn og hélt hreinu.

Jökull er fæddur 2001 og kemur úr Mosfellsbæ. Hann hefur verið afar öflugur með U23 liði Reading að undanförnu og var leikurinn í dag sá fyrsti sem hann spilar fyrir aðalliðið.

Reading heldur í æfingaferð eftir helgi og tekur Jökul með. Jón Daði Böðvarsson er einnig samningsbundinn Reading en ekki er ljóst hvort hann eigi framtíð fyrir sér hjá félaginu.

Reading var sjö stigum frá því að falla úr Championship deildinni í fyrra eftir að hafa fengið 47 stig úr 46 leikjum.
Athugasemdir
banner
banner
banner