Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 06. júlí 2019 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Okocha: Vissi ekki að ég væri svartur fyrr en ég fór til Þýskalands
Mynd: Getty Images
Nígeríski miðjumaðurinn Jay-Jay Okocha skemmti áhorfendum enska boltans með frammistöðum sínum á þeim fjórum árum sem hann lék fyrir Bolton.

Hann var þekktur fyrir að vera sérstaklega leikinn með knöttinn og ræddi um fortíðina í viðtali í nígerísku sjónvarpi.

Spyrillinn spurði hann út í sögu sem hann hafði heyrt af fyrstu æfingu Okocha hjá Borussia Neunkirchen. Samkvæmt sögunni lék Okocha á alla varnarmennina og markvörð liðsins en í staðinn fyrir að skora fór hann aftur með boltann af marklínunni til að leika aftur á þá alla áður en hann skoraði loks.

„Þetta er sönn saga. Þegar ég fór fyrst til Evrópu flutti ég til Þýskalands til að spila fótbolta. Á þessum tíma voru afar miklir kynþáttafordómar. Ég vissi ekki að ég væri svartur fyrr en ég kom til Þýskalands," sagði Okocha og uppskar hlátrasköll úr salnum.

„Þá hugsaði ég með mér hvað ég gæti gert til að sýna þeim að ég væri líka rasisti. Þannig ég byrjaði bara að sóla þá."




Athugasemdir
banner
banner
banner