Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 06. júlí 2019 22:20
Ívan Guðjón Baldursson
Rússneskur stuðningsmaður Magna var á vellinum í dag
Evgeniy með húðflúrið á vinstri handlegg.
Evgeniy með húðflúrið á vinstri handlegg.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rússinn Evgeniy elskar Ísland og íslenska knattspyrnu. Hann heldur sérstaklega mikið upp á Magna sem er á botni Inkasso-deildarinnar sem stendur.

Evgeniy hefur það mikinn áhuga á Magna að hann gerði sér ferð til Íslands og horfði á leik liðsins gegn Þrótti R. fyrr í dag.

Þeim leik lauk með 7-0 tapi Magna en Evgeniy fékk treyju gefins að leikslokum og hefur það eflaust bætt daginn hans til muna.

Þessi Evgeniy er sá sami og fréttamenn Fótbolta.net hittu á HM í Rússlandi í fyrra. Þar var hann á stuðningsmannasvæði Íslendinga, klæddur íslensku landsliðstreyjunni og með húðflúr af íslenska fánanum á handleggnum.


Athugasemdir
banner
banner