Brasilíumaðurinn Matheus Fernandes ætlar að kæra lið Barcelona að sögn spænska miðilsins Mundo Deportivo.
Fernandes var látinn fara frá Barcelona í síðasta mánuði en hann var aðeins fenginn til félagsins í fyrra.
Spænska félagið taldi sig ekki þurfa á þjónustu Fernandes að halda og rifti samningi hans sem átti að renna út 2024.
Fernandes telur að Barcelona skuldi sér mikla peninga og hyggst því kæra stórliðið samkvæmt þessum fréttum.
Fernandes er 23 ára gamall miðjumaður en hann kom til Börsunga frá Palmeiras árið 2020.
Hann spilaði með Real Valladolid á láni í fyrra en spilaði aðeins þrjá leiki án þess að skora mark.
Athugasemdir