Talar um stórskrýtin félagsskiptamarkað
Kjartan Stefánsson þjálfari Fylkis var skiljanlega dapur eftir 1-2 tap Fylkis í kvöld.
„Fúll með að hafa ekki tekið þennan leik. Þetta féll ekki með okkur í dag en margt sem við getum tekið úr þessum leik." voru fyrstu viðbrögð hans eftir leik.
Fylkir fékk nokkur mjög góð færi áður en ÍBV náði að komast yfir.
„Já við fengum nokkur opin færi og náðum því miður ekki að hitta ramman sem hefur verið því miður svolítið sagan okkar í sumar. Við hefðum getað verið í stöðunni 3-1 í hálfleik. Mér fannst við heilt yfir vera yfir í dag en ódýr aukaspyrna og gjöf í seinna markinu hjá okkur."

Lestu um leikinn: Fylkir 1 - 2 ÍBV
Hvernig var hans sýn á mörkin tvö sem Fylkir skoraði í uppbótartíma en töldu ekki.
„Mér fannst þetta ekki vera ranstæða þegar við skorum, mér fannst hann bangsa af Vestmannaeying, það eru mín fyrstu viðbrögð en maður á eftir að sjá þetta. Ég er í engri línu við þetta."
Eigum við von á liðsstyrk í Árbæinn.
„Ég veit það ekki, við höfum verið að skoða, þessi markaður er stórskrýtin og það er ekkert auðvelt að ná í leikmenn. Við erum búin að skoða ýmislegt."
Fylkir mætir Breiðablik í næsta leik en þær töpuðu fyrri leiknum stórt.
„Það verður hörkuleikur, við fórum ekki vel út úr fyrsta leik, vonandi höfum við lært helling og mætum gíraðar til leiks í þann leik."
Nánar er rætt við Kjartan í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir