Hildur Antonsdóttir gat brosað í kvöld eftir 3-2 sigur Breiðabliks á Þrótti R. í Pepsi Max-deild kvenna.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 2 - 3 Breiðablik
Hildur var að snúa aftur í lið Blika eftir erfið meiðsli en hún spilaði síðast fyrir liðið í fyrra eftir krossbandaslit.
Hildur spilaði síðustu sjö mínúturnar eða svo og tók þátt í sigurmarki liðsins í blálokin.
„Tilfinningin er mjög góð. Það er smá léttir að fá fyrstu mínúturnar og enn skemmtilegra í svona leik sem er mikill hasar í," sagði Hildur.
„Það er mjög skemmtilegt að við skoruðum eftir að ég kom inná. Það var geggjað að ná þremur stigum úr þessum leik."
„Það gekk allt mjög vel hjá mér og hingað til hefur ekki komið neitt bakslag. Það koma alltaf einhverjir down punktar á ferlinum því þetta er langt ferli."
„Mér líður ótrúlega vel og leið vel fyrir leikinn. Vonandi verða mínúturnar fleiri á næstunni."
Athugasemdir