Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 06. júlí 2021 20:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Liverpool án fimm leikmanna í byrjun tímabilsins?
Mynd: EPA
Liverpool hefur leik í ensku úrvalsdeildinni þann 14. Ágúst er liðið mætir Norwich á útivelli.

Talið er að fimm leikmenn liðsins verði ekki klárir í slaginn í tæka tíð. Alisson, Firmino og Fabinho eru allir með Brasilíu á Copa America og Henderson og Thiago eru á EM með Englandi og Spáni.

Það er gert ráð fyrir því að þeir fái að minnsta kosti þriggja vikna frí eftir mótin sem þýðir að þeir yrðu mættir í byrjun ágúst. Það gæti hinsvegar orðið að þeir fái eina viku auka í frí.

Þá eru aðeins nokkrir dagar í leikinn gegn Norwich og þeir ekki búnir að æfa neitt eftir langt tímabil og gott frí.
Athugasemdir
banner
banner