Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 06. júlí 2021 19:54
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Pepsi Max kvenna: Afar óvæntur sigur Tindastóls - Sterkir sigrar ÍBV og Þór/KA
María Dögg skoraði gríðarlega mikilvægt mark fyrir TIndastól í kvöld
María Dögg skoraði gríðarlega mikilvægt mark fyrir TIndastól í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heil umferð fer fram í Pepsi Max deild kvenna í kvöld. Þremur leikjum var að ljúka. Tindastóll vann óvæntan sigur á Stjörnunni og Þór/KA og ÍBV unnu góða sigra.

María Dögg Jóhannesdóttir kom Tindastóli yfir strax á sjöundu mínútu og þar við sat. „María Dögg skorar eftir 7 mínútna leik eftir horspyrnu frá Jaqueline. Boltinn skoppar inní teignum af leikmönnum en endar í löppunum á Maríu sem klúðrar ekki svona færum." sagði Hafþór Bjarki Guðmundsson í textalýsingu á leiknum.

Jakobína Hjörvarsdóttir kom Þór/KA yfir en hún skaut yfir Tiffany í markinu og inn í fyrirgjafastöðu, magnað mark. Margrét Árnadóttir tvöfaldaði forystu Þór/KA eftir frábæran undirbúnin Colleen Kennedy en Amelía Rún Fjeldsted klóraði í bakkann fyrir Keflavík undir lokin.

Þóra Björg Stefánsdóttir skoraði fyrra mark ÍBV beint úr aukaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks og Olga Sevcova skoraði annað mark ÍBV strax í upphafi þess síðari. Bryndís Arna Níelsdóttir klóraði í bakkann fyrir Fylki þegar rúmar 10 mínútur voru eftir.

Tveir leikir hefjast kl 20 en það eru viðureignir Selfoss og Vals annarsvegar og Þróttar og Breiðabliks hinsvegar.

Fylkir 1 - 2 ÍBV
0-1 Þóra Björg Stefánsdóttir ('45 )
0-2 Olga Sevcova ('47 )
1-2 Bryndís Arna Níelsdóttir ('78 )

Stjarnan 0 - 1 Tindastóll
0-1 María Dögg Jóhannesdóttir ('7 )

Keflavík 1 - 2 Þór/KA
0-1 Jakobína Hjörvarsdóttir ('21 )
0-2 Margrét Árnadóttir ('65 )
1-2 Amelía Rún Fjeldsted ('89 )
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner