Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 06. júlí 2021 19:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sjáðu stórkostlegt mark bandaríska kvennalandsliðsins
Carli Lloyd fagnar markinu sínu
Carli Lloyd fagnar markinu sínu
Mynd: EPA
Bandaríska kvennalandsliðið lék æfingarleik gegn því mexíkóska í gærkvöldi. Bandaríkin vann leikinn nokkuð örugglega.

Bandaríska liðið kláraði leikinn strax í fyrri hálfleik en þegar um fimm mínútur voru eftir var staðan 4-0.

Lindsey Horan kom þeim yfir strax á 8. mínútu og þremur mínútum síðar kláraði reynsluboltinn Carli Lloyd frábæra sókn sem byrjaði í öftustu línu með einna snertinga bolta frá upphafi til enda.

Reyna Reyes varð fyrir því óláni að skora síðan sjálfsmark og Tobin Heath kláraði leikinn fyrir Bandaríkin á 39. mínútu, 4-0 lokatölur í leiknum.

Mark Lloyd má sjá hér að neðan, stórkostleg spilamennska liðsins.


Athugasemdir
banner
banner