Vilhjálmur Kári Haraldsson, þjálfari Breiðabliks, var sáttur með sínar stelpur í leik gegn Þrótti R. í kvöld.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 2 - 3 Breiðablik
Breiðablik vann mjög dramatískan sigur á Þrótturum þar sem liðið skoraði tvö mörk í blálokin eða á 87. mínútu og þeirri 92.
„Mér líður vel. Mér fannst við algjörlega eiga þennan sigur skilið. Við áttum mjög góðan fyrri hálfleik og hefðum átt að skora fleiri mörk," sagði Vilhjálmur.
„Við byrjuðum fínt í seinni hálfleik en það var smá kjaftshögg að fá á sig mark þarna. Þetta er gott lið sem refsar með öfluga framherja. Við vissum að þetta yrði erfitt."
„Ég hafði tilfinningu fyrir því að við myndum jafna en ekki að við myndum vinna leikinn. Við vorum alltaf inni í þessum leik og með yfirhöndina."
Vilhjálmur staðfesti einnig að leikmaður Blika væri á leið í atvinnumennsku en hver það er kemur í ljós á næstunni.
„Þið eruð ekki búin að þefa það uppi. Nú hafiði smá tíma til að þefa það uppi. Hún er á leið í atvinnumennsku."
Athugasemdir