Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mán 06. september 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Aguero ætlaði að leggja aukalega á sig - „Öll ljós voru slökkt"
Sergio Aguero
Sergio Aguero
Mynd: Getty Images
Argentínski framherjinn Sergio Aguero skipti frá Manchester City til Barcelona í sumar en hann segir sínar farir ekki sléttar hjá nýja félaginu.

Aguero er 33 ára gamall og kom til Barcelona á frjálsri sölu eftir að hafa spilað í 10 ár hjá Man City.

Hann mætti alltaf einum og hálfum tíma fyrir æfingar hjá enska félaginu og ætlaði að hann að leggja aukalega á sig hjá Börsungum en það var ekki í boði.

„Hjá Manchester City þá mættum að minnsta kosti einum og hálfum tíma fyrir æfingu. Hérna mætum við hálftíma fyrr. Ég ákvað að mæta klukkutíma fyrr og sjá hvort ég gæti komist í ræktina eða eitthvað en neinei þá voru öll ljós slökkt," sagði Aguero á Twitch-rás Ibai Llanos.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner