Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 06. september 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Galatasaray hefur áhuga á Coutinho
Philippe Coutinho
Philippe Coutinho
Mynd: Getty Images
Tyrkneska félagið Galatasaray hefur áhuga á því að fá brasilíska sóknartengiliðinn Philippe Coutinho frá Barcelona áður en glugginn lokar þar í landi en þetta kemur fram í tyrkneskum miðlum.

Spænska félagið reyndi að losa sig við Coutinho í sumar en án árangurs.

Hann er með um 400 þúsund evrur í vikulaun hjá Börsungum og hélt það mörgum öflugum liðum í Evrópu frá því að næla í hann í glugganum.

Samkvæmt tyrkneskum miðlum gæti hann þó farið á láni til Galatasaray og er gert ráð fyrir frekari fréttum um það á morgun.

Félagið myndi fá hann á láni út leiktíðina en forkaupsréttur er ekki í myndinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner