Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mán 06. september 2021 12:12
Elvar Geir Magnússon
Hólfum fjölgað fyrir leikinn gegn Þýskalandi
Icelandair
Mynd: Haukur Gunnarsson
Farin er af stað ný miðasala á Tix.is fyrir leik Íslands og Þýskalands í undankeppni HM en leikurinn verður 18:45 á miðvikudagskvöld.

Eftir góða reynslu af framkvæmd sóttvarnarreglna í leikjunum gegn Rúmeníu og Norður-Makedóníu var ljóst að svigrúm væri til að fjölga sóttvarnarhólfum fyrir leikinn við Þýskaland.

Nýja miðasalan fór af stað núna klukkan 12 í hádeginu.

Samkvæmt upplýsingum Fótbolta.net ættu að geta verið um 3.600 áhorfendur á leiknum á miðvikudag. Í hinum leikjunum var möguleiki á 2.200 áhorfendum.
Athugasemdir
banner
banner
banner