Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 06. september 2021 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Laugi við dómarann: Hvað heldurðu að ég sé hundurinn þinn?
Guðlaugur Baldursson var ekki skemmt þegar honum var skipað að setjast
Guðlaugur Baldursson var ekki skemmt þegar honum var skipað að setjast
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðlaugur Baldursson, þjálfari Þróttar R. og Egill Arnar Sigurþórsson, dómari, áttu í orðaskaki í leik liðsins gegn Víkingi Ólafsvík í Lengjudeildinni í gær

Lestu um leikinn: Þróttur R. 5 -  2 Víkingur Ó.

Þróttarar náði forystu í leiknum með marki frá Sam Ford en fjórum mínútum síðar jafnaði Harley Willard.

Guðlaugur vildi fá hendi í aðdraganda marksins og fór að kvarta í Agli, dómara leiksins, en hann sagði þjálfaranum að setjast niður sem fór heldur betur í taugarnar á honum.

„Sestu? Hvað heldurður að ég sé hundurinn þinn?" sagði Guðlaugur og spurði.

Hafliði Breiðfjörð var að mynda á leiknum og vakti athygli á þessu á Twitter en færsluna má sjá hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner