Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 06. september 2021 15:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ramsdale í markinu gegn Norwich?
Ramsdale
Ramsdale
Mynd: Arsenal
Aaron Ramsdale gæti verið að taka við sem aðalmarkvörður Arsenal af Þjóðverjanum Bernd Leno.

Þetta herma heimildir breskra fjölmiðla sem segja að Ramsdale hafi sagt vinum sínum að hann verði í markinu hjá Arsenal gegn Norwich.

Arsenal keypti Ramsdale frá Sheffield United á um 30 milljónir punda í ágúst. Leno hefur verið gagnrýndur fyrir frammistöðuna í upphafi móts en hann hefur fengið á sig níu mörk í fyrstu þremur leikjunum í deildinni.

Í grein the Sun kemur fram að hann sé svo gott sem pottþéttur á því að hann verði í markinu gegn Norwich á laugardag í fjórðu umferð deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner