Franski framherjinn Franck Ribery er búinn að gera eins árs samning við Salernitana, nýliða í ítölsku Serie A deildinni.
Ribery er 38 ára gamall og spilaði 29 deildarleiki með Fiorentina á síðustu leiktíð. Hann þótti standa sig vel, hann skoraði tvö mörk og lagði upp sjö.
Nú greinir L'Equipe frá því að þýska stórveldið FC Bayern sé búið að gefa Ribery loforð um framtíðina. Þegar hann leggur skóna á hilluna mun hann fá kveðjuleik hjá Bayern og þá mun starf bíða hans hjá félaginu.
Bayern hefur boðið Arjen Robben, sem er búinn að leggja skóna á hilluna, svipað samkomulag. Robbery gætu því snúið aftur til Bayern í nýju hlutverki.
Athugasemdir