Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mán 06. september 2021 18:30
Ívan Guðjón Baldursson
U19 steinlá í æfingaleik í Sviss
Mynd: KSÍ
Sviss U19 3 - 0 Ísland U19
1-0 Bradley Fink ('35)
2-0 Bradley Fink ('54)
3-0 Carmine Chiappetta ('68)

Íslenska U19 ára landsliðið heimsótti Sviss og steinlá í æfingaleik þar, 3-0.

Bradley Fink kom Svisslendingum yfir í fyrri hálfleik og tvöfaldaði forystuna svo snemma eftir leikhlé.

Carmine Chiappetta gerði út um viðureignina með þriðja markinu á 68. mínútu.

U19 landsliðið á næst leiki við Slóveníu, Ítalíu og Litháen í undankeppni fyrir EM í október.

Byrjunarliðið:
Pálmi Rafn Arinbjörnsson (M)

Jakob Franz Pálsson
Kári Daníel Alexandersson
Logi Hrafn Róbertsson

Óli Valur Ómarsson
Kristófer Jónsson
Orri Steinn Óskarsson
Danijel Dejan Djuric (F)
Eggert Aron Guðmundsson

Ari SIgurpálsson
Arnar Númi Gíslason
Athugasemdir
banner
banner
banner