Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 06. september 2021 17:00
Elvar Geir Magnússon
Umhverfisvænn leikur Tottenham og Chelsea
Mynd: Getty Images
Tottenham hefur ákveðið að vera með sérstakt þema á heimaleik sínum gegn Chelsea þann 19. september þar sem umhverfisvernd verður í hávegum höfð.

Áhorfendur eru beðnir um að ferðast á leikinn með því að hjóla eða nota almenningssamgöngur og borða aðeins vegan fæði.

Þá er unnið að því með Sky sjónvarpsrisanum að minnka öll kolefnisspor í kringum leikinn.

Leikmenn beggja liða mæta á leikinn í rútum sem ganga fyrir lífeldsneyti og munu drekka vatn úr umhverfisvænum umbúðum.

Orkunotkunin í kringum leikinn er minnkuð eins og hægt er en afgangurinn verður svo veginn upp með því að styrkja fyrirtæki sem gróðursetja tré eða sjá um að hreinsa hafið.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner