Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 06. september 2021 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Viðar Örn með húðflúr af sér og syni sínum á hendinni
Icelandair
Hér sést í nýja húðflúrið hans VIðars á vinstri handleggnum
Hér sést í nýja húðflúrið hans VIðars á vinstri handleggnum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viðar Örn Kjartansson, framherji Vålerenga og íslenska landsliðsins, skartar nýju og skemmtilegu húðflúri á vinstri framhandleggnum en það er mynd af honum og syni hans frá tíma hans hjá ísraelska félaginu Maccabi Tel Aviv.

Selfyssingurinn hefur spilað 30 landsleiki og skorað 4 mörk en var í byrjunarliðinu í fyrstu tveimur leikjunum í undankeppninni í þessum mánuði.

Hann ákvað að húðflúra góðar minningar á handlegg sinn og sást það greinilega í leiknum gegn Rúmeníu og Norður Makedóníu,

Húðflúrið sýnir mynd af honum og syni hans frá tíma þeirra í Ísrael þar sem þeir ganga um völlinn í Maccabi Tel Aviv-treyjunni.

Nokkrir fótboltamenn hafa tekið upp á því sama en Nicolas Otamendi er með húðflör af börnum sínum, Walter White og Jesse Pinkman úr bandarísku þáttunum Breaking Bad ásamt því að vera með Tommy Shelby úr bresku þáttunum Peaky Blinders.

Argentínumaðurinn Mauro Icardi ákvað árið 2014 að fá sér húðflúr af þremur stjúpbörnum sínum.

Hægt er að sjá upprunalegu myndina hér fyrir neðan sem og húðflúrið hans Viðars.


Athugasemdir
banner