Hér að neðan má sjá brot af umræðunni í kringum leikinn á samskiptamiðlinum Twitter. Með því að fylgja Fótbolta.net á Twitter færðu fréttaveitu þar sem inn rúlla nýjustu fréttirnar úr boltanum.
Notið kassamerkið #fotboltinet fyrir boltaumræðuna á Twitter. Heimasvæði Fótbolta.net á Twitter er á @Fotboltinet.
NEIIII!!, á síðustu stundu kom mark eftir hetjulega baráttu hjá Stelpunum okkar! Þetta mark svíður rosalega en vá, hvað maður er stoltur. Þær voru svo nálægt þessu í dag en þessu er ekki lokið. Það er enn STÓR möguleiki að komast á HM. ÁFRAM ÍSLAND!! #dóttir #ísland #fotboltinet
— Höllin er úrelt (@Nyjahollstrax) September 6, 2022
Fótboltinn vann því miður í kvöld. Hetjuleg barátta og sárt að fá þetta mark á sig í lok leiks. Uppleggið var ekki gott og Sandra bjargaði okkur oft með stórleik. Þurfum að taka meiri áhættur. Erum of varnarsinnaðar miða við gæði leikmanna liðsins sóknarlega. #fotboltinet
— Orri Rafn Sigurdarson (@OrriRafn) September 6, 2022
Áfram eða ekki þá er þetta leikur uppá 10.0 hjá Söndru. Stöng og slá fá svo 8.5.
— Daníel Rúnarsson (@danielrunars) September 6, 2022
Ég er miður mín, heima í sófanum. Vorkenni stelpunum í Hollandi en eins og Óli Kri segir, þær koma sterkari til baka. Sandra MOM.
— Guðjón E Guðjónsson (@gudjone) September 6, 2022
😢💔🇮🇸 finn til með ykkur stelpur og öllu teyminu. Þið eruð hetjur. Þetta var gjörsamlega brutal - Þið takið þetta umspil og komist á HM, eigið það svo skilið. Sandra þvílíkur leikur @sandruz 👑👏👏 #fotboltinet
— Guðbjörg Gunnarsd. (@GuggaGunnars) September 6, 2022
Djöfull er þetta ógeðslega svekkjandi. Sanngjarnt en ömurlega svekkjandi. Mössum þetta umspil!
— Kolbeinn Tumi (@kolbeinntumi) September 6, 2022
Sara er alltaf mætt að verja sínar konur. Frábær leiðtogi
— Hörður Ágústsson (@horduragustsson) September 6, 2022
þetta var það sem bretinn kallar sitter
— Tómas (@tommisteindors) September 6, 2022
Stressið er við það að ganga frá mér
— Árni Þór Gunnarsson (@ArniThor8) September 6, 2022
Anda inn
Anda út#Fotboltinet #StelpurnarOkkar #FyrirÍsland #ÁframÍsland
Takk Dagný. Loksins tækling, aðeins að láta finna fyrir sér. Óþægilega miklir yfirburðir hollenska liðsins. Draumur að ná núllinu í hálfleik. Náum ekki að tengja þrjár sendingar.
— Kolbeinn Tumi (@kolbeinntumi) September 6, 2022
Hjartslátturinn má ekki við þessu...ég er orðinn miðaldra! #fotboltinet
— Matti Matti Matt. Hann/Him (@mattimatt) September 6, 2022
Er planið að verjast eitthvað eða bara fylgjast með og vona að sláin reddi þessu í klukkutíma í viðbót?
— Tómas Þór Þórðarson (@tomthordarson) September 6, 2022
OMG Sandra 🥵🙌🤩
— Svava Gretarsdóttir (@SvavaGretars) September 6, 2022
Við þurfum uppfært game-plan. Alls ekkert víst að hin þversláin verði líka með okkur í liði.
— Kolbeinn Tumi (@kolbeinntumi) September 6, 2022
Hollendingarnir að reyna að koma boltanum fram hjá Söndru. pic.twitter.com/ItsqAq9TwC
— Henry Birgir (@henrybirgir) September 6, 2022