Íslenska kvennalandsliðið er að spila við Holland í undankeppni HM en það eru heimakonur sem eru heldur betur að þjarma að íslenska liðinu.
Lestu um leikinn: Holland 1 - 0 Ísland
Íslenska liðið byrjaði vel og skapaði sér nokkrar góðar stöður áður en Holland setti í næsta gír.
Liðið hefur átt tvö sláarskot í leiknum og þá bjargaði Guðný Árnadóttir á línu fyrir nokkrum mínútum.
Danielle van de Donk kom sér í teiginn var í dauðafæri en Sandra Sigurðardóttir varði boltann. Boltinn var að leka yfir línuna er Guðný hreinsaði frá.
Hægt er að sjá þetta hér fyrir neðan en staðan er enn markalaus.
Úff!! Þverslá og línuhreinsun. Það er þung pressa hjá Hollendingum núna. Tvö sláarskot og Guðný hreinsar á línu. Ennþá markalaust sem betur fer. pic.twitter.com/HmhFFjsrLn
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) September 6, 2022
Athugasemdir