Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   sun 06. október 2019 05:55
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
England í dag - Hvað gerir Man Utd gegn Newcastle?
Arsenal mætir Bournemouth í dag.
Arsenal mætir Bournemouth í dag.
Mynd: Getty Images
Gengi Man Utd undanfarið hefur ekki verið gott, þeir heimsækja Newcastle í dag.
Gengi Man Utd undanfarið hefur ekki verið gott, þeir heimsækja Newcastle í dag.
Mynd: Getty Images
Það eru fjórir flottir leikir á dagskrá ensku úrvalsdeildarinnar í dag, flautað verður til leiks í þremur þeirra klukkan 13:00 en fjórði og síðasti leikur dagsins hefst klukkan 15:30.

Frank Lampard og lærisveinar hans í Chelsea heimsækja Southampton, Chelsea hafði betur gegn Brighton í síðustu umferð en á sama tíma tapaði Southampton gegn Tottenham.

Arsenal gerði jafntefli við Man Utd á Old Trafford síðastliðinn mánudag, sigruðu svo Standard Liege örugglega í Evrópudeildinni á fimmtudaginn. Nokkuð góð vika að baki hjá þeim, í dag fá þeir Bournemouth í heimsókn, sem er með 11 stig, stigi minna en Arsenal.

Manchester City reynir að halda í við Liverpool sem sigraði Leicester á Anfield í gær. Englandsmeistararnir fá Úlfana í heimsókn í dag sem koma sáttir heim úr löngu ferðalagi í Evrópudeildinni. Wolves sigraði Besiktas í Tyrklandi á fimmtudaginn með sigurmarki sem kom undir lok leiksins.

Lokaleikur 8. umferðar er viðureign Newcastle og Manchester United, þessi lið hafa ekki byrjað tímabilið vel, heimamenn í Newcastle með 5 stig en gestirnir frá Manchester með 9 stig eftir sjö umferðir.

Sunnudagur 6. október.
13:00 Southampton - Chelsea (Síminn Sport)
13:00 Arsenal - Bournemouth
13:00 Man City - Wolves
15:30 Newcastle - Man Utd (Síminn Sport)




Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
2 Arsenal 32 22 5 5 75 26 +49 71
3 Liverpool 32 21 8 3 72 31 +41 71
4 Aston Villa 33 19 6 8 68 49 +19 63
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 33 13 9 11 52 58 -6 48
9 Chelsea 31 13 8 10 61 52 +9 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 32 12 7 13 46 51 -5 43
12 Fulham 33 12 6 15 49 51 -2 42
13 Bournemouth 32 11 9 12 47 57 -10 42
14 Crystal Palace 32 8 9 15 37 54 -17 33
15 Brentford 33 8 8 17 47 58 -11 32
16 Everton 32 9 8 15 32 48 -16 27
17 Nott. Forest 33 7 9 17 42 58 -16 26
18 Luton 33 6 7 20 46 70 -24 25
19 Burnley 33 4 8 21 33 68 -35 20
20 Sheffield Utd 32 3 7 22 30 84 -54 16
Athugasemdir
banner
banner