Hinn 18 ára gamli Harvey Elliott, leikmaður Liverpool, meiddist alvarlega gegn Leeds fyrir rúmum þremur vikum síðan en hann gaf stuðningsmönnum Liverpool von um að hann gæti spilað fyrr en áætlað var í fyrstu.
Hann meiddist illa á ökkla eftir tæklingu frá Pascal Struijk en fóturinn á honum varð undir líkama Struijk. Leikmaður Leeds fékk rautt spjald og þriggja leikja bann.
Elliott sagði að þetta hafi bara verið slys og Struijk ætti ekki skilið að fara í bann en Leeds áfrýjaði en bannið stóð.
Það gladdi stuðningsmenn Liverpool að opna Instagram í gær og sjá mynd af Elliott á æfingahjóli aðeins tæpum mánuði eftir brotið.
Athugasemdir