Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 06. október 2021 08:30
Elvar Geir Magnússon
Gengið frá kaupunum á Ronaldo í garðinum hjá Lineker
Sjónvarpsmaðurinn Gary Lineker er fyrrum landsliðsmaður Englands.
Sjónvarpsmaðurinn Gary Lineker er fyrrum landsliðsmaður Englands.
Mynd: Getty Images
Sjónvarpsmaðurinn Gary Lineker hefur opinberað að gengið var frá sögulegri endurkomu Cristiano Ronaldo í garðinum heima hjá honum.

„Ég skal setja spilin á borðið. Ed Woodward er góður vinur minn og býr í næsta húsi. Hann gekk frá kaupum á Ronaldo meðan hann var í garðinum mínum! Hann var í símanum við Jorge Mendes og ég á frábæra mynd af honum tala í símann, ég mun kannski opinbera hana einn daginn með hans leyfi," segir Lineker.

Woodward er framkvæmdastjóri Manchester United eins og flestir vita en simtalið við Mendes, umboðsmann Ronaldo, skilaði sínu því Ronaldo var keyptur aftur til United.

Ronaldo gerði tveggja ára samning með möguleika á einu ári til viðbótar. Hann hefur skorað fimm mörk í fyrstu sex leikjum sínum eftir endurkomuna.
Athugasemdir
banner
banner
banner