mið 06. október 2021 12:00
Elvar Geir Magnússon
Gerir Liverpool óvænt tilboð í Vlahovic?
Vlahovic er einn sá eftirsóttasti í bransanum.
Vlahovic er einn sá eftirsóttasti í bransanum.
Mynd: EPA
Serbneski sóknarmaðurinn Dusan Vlahovic er feikilega eftirsóttur og er einn umtalaðasti leikmaður Evrópuboltans um þessar mundir.

Foseti Fiorentina sendi frá sér yfirlýsingu í gær en hann sagði að Vlahovic, sem er 21 árs, hefði hafnað öllum samningstilboðum félagsins.

Núgildandi samningur Vlahovic er til 2023 en hann hefur meðal annars verið orðaður við Juventus, Tottenham og Manchester City.

Tuttosport segir að Liverpool gæti gert óvænt tilboð í leikmanninn í janúarglugganum. Liverpool keypti engan leikmann í liðnum janúarglugga.

La Gazzetta dello Sport segir að Fiorentina vilji fá að minnsta kosti fá 90 milljónir evra fyrir hann.

Fróðlegt verður að sjá hvaða viðtökur Vlahovic mun fá frá stuðningsmönnum Fiorentina á næsta heimaleik liðsins á Stadio Artemio Franchi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner