Íslenska landsliðið kom saman á mánudag og undirbúir sig fyrir leik gegn Armeníu á föstudag og svo í framhaldinu leik gegn Liechtenstein á mánudag. Tveir leikmenn voru til viðtals á Teams í dag. Annar þeirr var Elías Rafn Ólafsson sem er markvörður FC Midtjylland.
Önnur svör Elíasar:
Búið að vera draumi líkast - „Mér finnst ég vera bestur"
Óvissa hver verður í markinu - „Ef kallið kemur þá er maður auðvitað klár"
Önnur svör Elíasar:
Búið að vera draumi líkast - „Mér finnst ég vera bestur"
Óvissa hver verður í markinu - „Ef kallið kemur þá er maður auðvitað klár"
Hvernig er að vera kominn inn í þetta fyrsta keppnisverkefni með A-landsliðinu? Er mikill munur á æfingunum miðað við hjá U21 landsliðinu?
„Þetta eru auðvitað sömu þjálfarar og við vorum með í U21 og því svipuð uppsetning. Við ungu leikmennirnir sem eru að koma inn í þennan hóp þekkjum taktíkina hjá þeim Adda og Eiði. Þetta er að sjálfsögðu skref upp á við og það eru alvöru gæði í þessum hóp."
Hvernig nálgast þið þessa leiki sem eru framundan í ljós þess að möguleikarnar á sæti á HM eru svo gott sem úr sögunni?
„Maður vill fara í hvern og einn leik til að vinna. Við erum samt í þeim umtalaða fasa að við erum að byggja upp nýtt lið en að sjálfsögðu vill maður alltaf vinna."
Hefur þú trú á því að þjálfararnir geti búið til alvöru lið úr því sem þeir eru að byggja upp?
„Algjörlega. Við sem vorum í U21 í síðustu keppni þekkjum þjálfarana mjög vel og það er traust á milli. Ég hef fulla trú á því að þeir geti búið til alvöru lið úr þessum hóp sem þeir eru með."
Hvernig virka hlutirnir núna út af covid í þessu verkefni? Fáið þið að hitta vini og fjölskyldu?
„Við erum bara inn á hóteli. Við æfum á morgnana og stundum seinni partinn líka. Við erum þess á milli í borðtennis eða spila eða eitthvað svoleiðis til að drepa tímann á hótelinu," sagði Elías.
Athugasemdir