Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   mið 06. október 2021 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Leikmaður Aston Villa fær kallið í brasilíska landsliðið
Mynd: Getty Images
Casemiro miðjumaður Real Madrid hefur dregið sig úr landsliðshópi Brasilíu sem mætir Venezuela, Kólumbíu og Úrugvæ í undankeppni HM í vikunni.

Casemiro getur ekki leikið með landsliðinu þar sem hann fékk sýkingu í vígtönn.

Inn í hans stað kemur Douglas Luiz leikmaður Aston Villa en hann hefur verið lykilmaður enska liðsins síðan hann gekk í raðir þess tímabilið 2019/20.

Hann á að baki 8 landsleiki fyrir Brasilíu. Brasilía er á toppi riðilsins með fullt hús stiga eftir 8 leiki.
Athugasemdir
banner
banner
banner