Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 06. október 2021 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Saliba er í framtíðarplönum Arsenal
Mynd: Getty Images
Hinn tvítugi William Saliba sem er á láni hjá Marseille frá Arsenal mun vera í aðalliði Arsenal á næstu leiktíð. Þetta segir Fabrizio Romano.

Arsenal keypti Saliba frá Saint-Etienne árið 2019 og lánuðu hann strax aftur til franska félagsins.

Hann mætti síðan til Arsenal á síðasta tímabili en lék ekki neitt með félaginu því Mikel Arteta taldi hann ekki tilbúinn, hann fór því á lán til Nice í janúar og eins og fyrr segir var hann sendur aftur á lán í ár til Marseille.

Arsenal hefur fylgst vel með honum hjá Marseille þar sem hann er í lykilhlutverki en félagið var ósigrað í fyrstu fimm leikjum deildarinnar en hefur nú tapað tveimur leikjum í röð.
Athugasemdir
banner
banner