Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 06. október 2021 15:49
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Þórir um sambúðina með Brynjari: Þett'er ekkert vesen
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þórir Jóhann Helgason og Brynjar Ingi Bjarnason eru liðsfélagar hjá ítalska liðinu Lecce. Þórir Jóhann kom til félagsins frá FH í sumar og Brynjar Ingi kom svo skömmu síðar frá KA.

Þórir Jóhann var til viðtals á Teams í dag og var hann spurður út í Brynjar. Hvernig er að hafa annan Íslending hjá félaginu

i>„Það er mjög gott að hafa einn Íslending með sér og við erum góðir vinir," sagði Þórir.

„Við búum saman í íbúð og þetta er mjög fínt, líka upp á tungumálið að gera, við erum að byrja læra ítölskuna saman."

Hvernig gengur sambúðin, er þetta ekkert vesen? „Nei, nei, þetta er fínt. Þett'er ekkert vesen," sagði Þórir.

Þeir Þórir og Brynjar eru báðir í landsliðshópnum sem undirbýr sig fyrir leiki gegn Armeníu og Liechtenstein.
Athugasemdir
banner
banner