Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 06. nóvember 2019 11:38
Magnús Már Einarsson
Rooney byrjaður að æfa með Derby
Mynd: Getty Images
Wayne Rooney æfði í vikunni í fyrsta skipti með Derby County en hann mun fá leikheimild með liðinu um áramót.

Eftir 25 mörk í 52 leikjum með DC United í Bandaríkjunum er hinn 34 ára gamli Rooney á leið til Englands á nýjan leik en hann mun spila með Derby í Championship deildinni og vera í þjálfaraliði félagsins.

Derby ætlar að láta Rooney æfa mjög vel næstu vikurnar til að hann verði í toppstandi þegar hann fær leikheimild.

Rooney er launahæsti leikmaður Derby með 100 þúsund pund á viku en félagið hefur verið gagnrýnt þar sem veðmálafyrirtækið 32Red borgar stóran hluta af launum hans.
Athugasemdir
banner
banner
banner